— Um okkur

Um okkur

Jarðvinnuverktakafyrirtækið Egill Guðjóns ehf. var stofnað 2016 á Selfossi.

Jarðvinnuverktakafyrirtækið Egill Guðjóns ehf. var stofnað 2016 á Selfossi. Fastir starfsmenn eru 6 auk þess sem fyrirtækið er í góðu samstarfi við öfluga undirverktaka á svæðinu í stærri verkum. Starfsstöð er í Gagnheiði 49, Selfossi. Eigandi er Egill Guðjónsson.

Egill Guðjóns ehf. sér um alla almenna jarðvinnu, m.a. uppúrtektir, fyllingar, jarðvegsskipti, lagnavinnu og efnisflutninga. Þjónusta fyrir bændur s.s. hreinsun skurða og kílræsingar.

Fyrirtækið er vel tækjum búið og tekur að sér fjölbreytt verkefni — m.a. jarðvegsskipti, vegalagningu, kaldavatns- og hitaveitulagnir, nýlagnir og endurnýjun eldri lagna.

Starfsmenn Egils Guðjóns ehf. búa yfir mikilli reynslu í jarðvinnugeiranum og hafa yfir að ráða góðum tækjakosti. Við leggjum áherslu á að vinna öll okkar verkefni stór og smá af ábyrgð, fagmennsku og heiðarleika.

Jarðvinna á Suðurlandi
2016
Stofnað
6
Fastir starfsmenn
Selfoss
Heimavöllur
Næsta skref

Við tökum að okkur fjölbreytt jarðvinnuverkefni

Hafðu samband ef þú vilt ræða verk eða senda inn gögn.